Svífandi töffari

glymsson.jpgVíkingur frá Skarði- fæddur 2008

Ætt

 F: Glymur 2001135613 Innri-Skeljabrekku

M: Sædís 2001255493 Múla

glymsson_fra_bakkakoti_669749.jpgMóvindótt hestfolald,  gullfallegt með góðar hreyfingar. Fer aðallega um á svifmiklu brokki með miklum fótaburði, sýnir líka tölt. Folaldið er undan gæðingnum Glymi frá Innri- Skeljabrekku. 

(tekið af Bakkakots-vefnum) sjá hér

Til hamingju með þenna töffara

kv. Glymurgroup


Efnilegir folar

Vindar frá HrafnkelstöðumTveir vindóttir        
Hún Monika á Hrafnkelstöðum sendi okkur þessar fínu myndir af tveimur veturgömlum ógeltum Glymssonum. Þeir heita:
-Kristall frá Hrafnkelsstöðum og
-Vindar frá Hrafnkelsstöðum
 
Bestu þakkir fyrir sendinguna Monika,
kv. Glymurgroup
Kristall frá Hrafnkellsstöðum

Hefur fyljað gífurlega vel

Glymurinn á Hellunni130. ágúst 2008 - Neðra Sel
Sónað frá Glym í gær
Það hefur gengið framúrskarandi vel með hann Glym frá Innri-Skeljabrekku í sumar hjá okkur.  Hann kom eftir Landsmót og hefur fyljað alveg gífurlega vel síðan.  Í gær sónuðum við þær hryssur sem var hugsanlega hægt að sjá fyl í til að fækka hjá honum, og það er skemmst frá því að segja að þær voru allar fylfullar.  Vegna tímaleysis er ekki enn búið að hringja í alla eigendur þessara hryssa, en það verður gert í dag, og þeir beðnir um að sækja þær um helgina. 

Hesturinn verður hjá okkur út september og vegna þess hve vel hefur gengið er ennþá hægt að lauma inn til hans hryssum sem einhverra hluta vegna eru ekki fengnar, því hann tekur þessu öllu með stóískri ró.  Hafið samband ef þið viljið nýta þennan frábæra og litfagra gæðing meðan hann er á Suðurlandi.

Glymurinn á Hellunni1Glymur fór aðeins fjögurra vetra í 8,33 í aðaleinkunn, og fékk þar af 9 fyrir tölt og vilja, og 8,5 fyrir brokk, skeið og fegurð í reið.  Hann er framúrskarandi samræmisfallegur, faxprúður og síðast en ekki síst geðgóður og óvenju litfagur.

Tekið af vef Úrvalshesta

© Úrvalshestar | Neðra Sel  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM: 659 2237 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is | 


Hreyfingarmikill

Hrimfaxi (f. 2006)

e. Glymur frá Innri-Skeljabrekku               

hrimfaxi5.jpgHrimfaxis pappa, Glymur frá Innri-Skeljabrekku fick 8.67 i ridegenskaper blott 4 år gammal, det högsta en 4-åring någonsin fått. Glymur är världen högst bedömda silversvarta häst någonsin! Exteriör: 7.81 Ridegenskaper: 8.67
Totalt 8.33

Vi väntar med spänning på att se vad det blir av denne än så länge lille krabat.hrimfaxi8

hrimfaxi6.jpg


Sendu okkur myndir

Sendu okkur mynd/ir af þínu Glymsafkvæmi á glymur@visir.is
BirtudóttirÓðinn frá GeirmundarstöðumSigurvin frá Húsavík


Sónað 11. ágúst

DSC00537

1. ágúst 2008
Sónað frá Glym 11. ágúst

Ó babe !!!-1Það verður sónað frá Glym þann 11. ágúst.  Hringt verður í eigendur fyllfullra hryssa og biðjum við þá að vera í startholum með að sækja þær, en aðrar verða settar aftur með hestinum í girðinguna.  Þeir sem áttu pantað pláss undir Glym á þetta seinna gangmál eru beðnir um að mæta með hryssur sínar þennan sama dag.  Örfá pláss eru laus undir hestinn á þessu seinna gangmáli.

© Úrvalshestar | Neðra Sel  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM: 659 2237 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is |


Lumar þú á mynd af Glymsafkvæmi

Mikið af gullfallegum folöldum hafa komið undan Glymi

Sendu okkur endilega mynd á netfangið glymur@visir.is 


Myndarleg dóttir

Undan Birtu og GlymiFengum sendar myndir af gullfallegri Glymsdóttur.

...Birta okkar beið fram yfir LM með að kasta og kom þá með þessa fínu hryssu fyrir okkur. Myndirnar eru af henni ný fæddri og svo dagsgamalli en það er allveg með ólíkindum hvað hún lék sér fljótt, var farin að hoppa og hlaupa um allt eftir ör fárar klst eftir fæðingu. Hún sýnir mest tölt og brokk en ég hef nú séð „fimmta“ gírnum brugðið fyrir sig ef mikið hefur legið við ;-)

Við erum búin að halda Birtu aftur og þar var mikið spurt um þá stuttu, allir hrifnir af henni bæði hvað hún er falleg og gangurinn góður ;-)

Kv Lilja Sigurðard

Til hamingju með þessa flottu hryssu....

Fleiri myndir hér 


Frelsinu feginn

12. júlí 2008 Frétt frá þeim í Neðra-Seli-urvalshestar.is
Glymur byrjaður að sinna hryssum

Glymur frá Innri-Skeljabrekku er byrjarður að sinna hryssum í Neðra-Seli, og er nánast fullt hjá honum á fyrra gangmáli.  Það verður þó sónað frá honum eins fljótt og hægt er og því er enn möguleiki að koma til hans hryssum við það tækifæri.  Glymur er frábær alhliða gæðingur sem núna rétt um daginn var í B-úrslitum í A-flokki gæðinga á Landsmótinu.  Glymur hefur einnig hlotið hæstu hæfileikaeinkunn fjögurra vetra stóðhests fyrr og síðar, 8,69 ef minnið er ekki að stríða mér.  Glymur var frelsinu feginn þegar hann stökk af stað í hryssuhópinn sinn fyrr í vikunni eins og myndin sýnir.

Glymur í Neðra-Seli

7. júlí 2008
Glymur frá Innri-Skeljabrekku

Nú er Glymur kominn í hryssurnar í Neðra-Seli. Er hann þar í risastóru hólfi með nóg af grasi. Fylgst er vel með að allt fari rétt fram en Glymur er þó alveg með þetta á hreinu og er einstaklega ljúfur og sinnir merum eftir þörfum.

Sónað verður frá Glymi og bætt í jafn óðum en þeir sem eru á biðlista verða látnir vita um leið og pláss losnar, en þó er þetta allt í höndum þeirra á Neðra-Seli, þau hafa fína stjórn.

Glymurinn á Hellunni1Frekari upplýsingar er að fá hjá Úrvalshestum© Úrvalshestar | Neðra Sel  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM: 659 2237 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is |


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband