Færsluflokkur: Menning og listir
16.5.2007 | 12:45
Nýfædd gullhryssa
Gullfalleg hryssa
Hér gefur að lýta fjögra daga gamla dóttur Bylgju frá Snjallsteinshöfða (1.v) og Glyms frá Innri-Skeljabrekku. Hún fæddist laugardaginn 12. maí. Eins og sést er hún stórglæsileg, móálótt-vindótt á litinn, háfætt og með þunnan og reistan háls. (sjá fleiri myndir og frétt, Úrvalshestar
Það væri okkur eigendum Glyms sönn ánægja ef við fengjum sendar myndir af nýfæddum folöldum undan honum og þeim merum sem kíktu til hans síðastliðið sumar, nem.gunnarhg@lbhi.is
Mikil og góð aðsókn hefur verið í folatolla undir Glym og fer hver að verða síðastur að fá toll nú í sumar. Sjá nánar Notkun sumarið 2007 hér fyrir neðan
Menning og listir | Breytt 18.7.2007 kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2007 | 23:56
Góðar hestasögur
Kommi frá Höfn
Kommi er brúnn og fæddur 1993 og er náttúrlega undan Hamri og Sigð eins og nafnið felur í sér. Gunnsi rafvirki og heiðursgestur á hann og hefur á honum óskiljanlegt eftirlæti, þar sem hesturinn er ekki frægur fyrir neitt annað en eiganda sinn og hina ógleymanlegu sýningu á föður hans á fjórðungsmótinu á Fornustekkum árið 1995 og er ólíklegur talinn til þess að setja met og öðlast frægð, þó enn sé reyndar möguleiki á slíku. En ástin spyr ekki um rök og ástæður. Á umræddri sýningu reið Haraldur í Haga Hamri gröðum með standpínu um allar vallarbrautir með skvettum og prjóni, útundansérhlaupum og uppstökkum, hoppum og híum, hvæsi og hvíum, sem alls staðar mátti greina. Það heyrðist í áhorfendabrekkunni, á sýningarbrautinni, í meragerðunum út við Fornastekkarot, úr dómarabásunum og í hátalarakerfinu. Þá var Hamar stórkostlegur en féll ekki sem allra best að hefðbundinni sýningarhegðun
(Páll Imsland -Tekið saman janúar 2004)
Sjá fleiri góðar sögur undir síður-hestasögur, þar eru t.a.m. sögur af Hitler frá Hömrum, Óðu-Rauðku 2, Litla-Skít frá Fornustekkum og Framsóknar-Grána frá Einholti
Menning og listir | Breytt 29.4.2007 kl. 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2007 | 16:58
Gleðilegt sumar !!!!!
.... og takk fyrir veturinn. Gaman að sjá hvað síðan hefur verið vinsæl og vel sótt
Hér er smá video af Glym dansa "erótískan dans" við Lenu sem á rosa flotta stelpu sem heitir Lotta - Glymur okkar er í góðu standi og er meira en tilbúinn í merafjörið !!! Vonandi verður sumarið jafn fjörugt hjá þér lesandi góður......ohóóóó thank you Jesus !!!!!
Mundu að hækka í tónlistinni með þessu myndbandi og þá mun dansinn duna............
Menning og listir | Breytt 25.4.2007 kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2007 | 17:03
Vænting frá Ásgarði í 1 sæti og valin glæsilegasta folaldið
Hó, hó, hó !!! Hvað er nú að gerast... Jú, hún Vænting var að minna á sig, góðir gestir.....
Á folaldasýningu hestamannafélagsins Mána í reiðhöllinni á suðurnesjum gerði Vænting frá Ásgarði loftið rafmagnað.
Vænting sýndi allar sínar bestu hliðar, bæði tölti, brokkaði og skeiðaði með svo miklum tilþrifum að þulurinn í húsinu átti í vandræðum með munnkirtlanna.
Á sýningunni komu fram 20 merfolöld og 10 hestfolöld. Vænting var valin í fyrsta sætið af merfolöldunum og valin glæsilegasta folaldið af þeim öllum. Og þá leið yfir nokkra áhorfendur.
Við eigendur pabba gamla, Glyms frá Innri-Skeljabrekku óskum ræktendum, eigendum og Væntingu til hamingju með stórkostlegan árangur. Megi gæfa og gleði fylgja ykkur
Ef þú vilt eignast fasmikið, litfagurt, stórskrefótt og gangsamt folald með stórkostlegar hreyfingar og mýkt þá skaltu taka upp símann og hringja, 849-6899 (Finnur), og panta toll ..................
Við bíðum full eftirvæntingar að heyra meira frá þessum gullmola.
Sjá nánar um sýninguna á heimasíðunni í Ásgarði hér
Menning og listir | Breytt 29.1.2008 kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2007 | 17:15
Ætterni Glyms

Nú er hægt að skoða ætt Glyms betur undir ætterni
Þar gefur að líta hina göfugu, faxprúðu, viljugu, geðgóðu, fögru og stórglæsilegu ætt, töfrum sveipaðra forfeðra Glyms frá Innri-Skeljabrekku sem trónir á toppnum sem eitt mesta kraftaverk Íslandssögunnar.
Góða skemmtun gott fólk og hinir líka !!! Hallelúja !!
Menning og listir | Breytt 3.4.2007 kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2007 | 21:57
Vindóttir gullmolar
Hafiði séð annað eins!!!! Er ekki mikil reisn yfir þessum unga fola? Tignarlegur teygir hann úr sínum fallega hálsi svo fólk sem fer hjá stoppar og spyr sig, ,,hvaðan kemur þessi ".......
Þessi foli kemur úr Dölunum, nánar tiltekið úr Saurbæjarhrepp og heitir Týr frá Miklagarði. Hún Magga í Miklagarði var svo vinaleg að senda okkur þessa mynd af honum.
Töluvert af vindóttum folöldum hafa komið undan Glym. Þau fara alla jafna um á tölti, brokki og grípa mörg hver í skeið.. Hver veit nema að bráðum komi video af einu þeirra síðar..........
Kominn eru inn á síðuna nokkur folöld undan Glym. Hægt er að sjá þau undir Afkvæmi. Fleiri myndir af þessum folöldum eru svo hægt að finna undir Myndaalbúm.
Ef þú lumar á mynd af afkvæmi undan Glym og einhverri af þeim fallegu merum sem hafa heimsókt hann þá væri gaman ef þú sendir okkur hana....nem.gunnarhg@lbhi.is Gaman væri að fá fleiri en eina
Menning og listir | Breytt 29.3.2007 kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 22:05
Í miklu stuði
Glymur hefur verið í léttri þjálfun og er svakalega líflegur og léttur þrátt fyrir frekar þungan knapa. Knapinn er um 126 kg en Glymur finnur ekki fyrir því. Gárungar í sveitinni hafa aldrei séð hest bera jafn feitan knapa eins og raun ber vitni, önnur eins hlussa hefur ekki sést í Borgarbyggð ríðandi á jafn fallegum hesti, eins og flestir í sveitinni eru sammála um. En Glymur er í góðu standi, léttur, kátur og glansandi fínn og líður hreint alveg ótrúlega vel þrátt fyrir allt saman. Heyrst hefur að knapinn sé kominn á Nupolétt.
Hér kemur ódýr vísa:
Finnur er þar þungur knapi
á baki dansinn vekur
Er hann samt í léttu skapi
kröftug sveiflan skekur
Hægt er að sjá fleiri nýjar myndir af Glym undir myndaalbúm en myndaalbúmið heitir Glymur í febrúar 2007.
Þar má sjá glymjandi gleði
Menning og listir | Breytt 1.4.2007 kl. 19:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2007 | 23:39
Video af Glymi
Lenti í 9. sæti í 5 vetra flokknum
Glymur stóð sig vel á Landsmótinu á Vindheimamelum síðastliðið sumar. Þar voru mætt til leiks mögnuð hross í flokki 5 vetra stóðhesta. Kynbótabrautin geislaði af glæsileika en þar voru samakomnar sannkallaðar hæfileikasprengjur sem flestir kunna deili á.
Hægt er að sjá video af Glymi frá Innri-Skeljabrekku á Landsmótinu hér á síðunni undir Nýjustu myndbönd
Hægt er að sjá myndbandið í enn betri gæðum inn á Hestafrettir.is og inn á worldfeng. Sjá tengla hér til vinstri.
Menning og listir | Breytt 29.4.2007 kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2007 | 15:17
Glymur í hófum

Glymur vakti gífulega athygli þegar hann kom fyrst fram fjögra vetra gamall á Sörlastöðum í Hafnarfirði 2005. Glymur hlaut þá frábærar einkunnir fyrir hæfileika, þar á meðal 8,5 fyrir fegurð í reið, tölt, brokk og skeið, og 9,0 fyrir vilja og geðslag. Fyrir byggingu fékk Glymur 7,81. Í aðaleinkunn fékk hann 8,26. Á fjórðungsmóti Vesturlands hækkaði Glymur í einkunn fyrir tölt úr 8,5 í 9,0. Sú hækkun kom honum í 8,33 í aðaleinkunn og 8,67 fyrir hæfileika. Í dómalýsingunni er töltið sagt rúmt, öruggt og skrefmikið. Skeiðinu er lýst sem ferðmiklu og viljinn ásækinn og þjáll. Glymur er með beina neflínu, reistur með háar herðar. Bakið er breitt og lendin afturdregin en flöt. Glymur er útskeifur að framan en hófar efnisgóðir og hælar þykkir. Glymur hefur þroskast mikið síðan þessi umsögn var gerð en hann hækkaði í byggingareinkunn úr 7,81 í 7,98 á síðasta ári.
Kominn af Sauðárkrókshestum

(Byggt að hluta á 1.tbl 2006 HESTAR tímariti um íslenska hestinn)
Menning og listir | Breytt 6.4.2007 kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2006 | 17:11
98% fyljunarhlutfall
Síðastliðið sumar var Glymur í góðu yfirlæti með merum á bænum Eyri í Svínadal. Um var að ræða langt tímabil en hjá honum voru um 40 merar í girðingu. Vel ríflega helmingurinn af þeim voru 1. verlauna merar. Glymi hafði fyrir landsmót verið haldið á húsi en 12 merar fóru undir hann í Kópavoginum (sjá myndb.). Af þessum rúmlega 50 merum var aðeins ein geld sem hlítur að teljast frábær árangu
Enn eru laus pláss fyrir næsta sumar.
Upplýsingar um notkun og pantanir í síma: 849-6899 (Finnur), 849-2839 (Lena), 8932318 (Gunnar).
Menning og listir | Breytt 17.4.2007 kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)