18.6.2007 | 01:21
Mígandi hamingja
Nú hafa þrjár jarpvindóttar hryssur komið í heiminn í sumar og ein þeirra jarpvindskjótt. 7. júní fæddist hún Teygja en hún er undan meri með nafnið Tign og Glym okkar.
Sjá nánar frétt og fleiri frábærar myndir af þessu glæsilega folaldi hjá Úrvalshestar
Við óskum eigendum til hamingju með litla greyið en greinilegt er að hún tekur hlutverk sitt alvarlega og er strax farin að vökva túnin, þó ekki sé þörf á í augnablikinu á okkar farsæla Fróni.
Við óskum enn og aftur eftir myndum af nýfæddum, sendist á nem.gunnarhg@lbhi.is
Flokkur: Menning og listir | Breytt 1.7.2007 kl. 21:29 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.