Glymur mætir til leiks á Akureyri

glymur6_je-1.jpgGlymur frá Innri-Skeljabrekku kemur fram í TopReiterhöllinni. 

Glymur mun sýna sig í höllinni á Akureyri á morgun. Glymur kemur fram ásamt ungri dóttur sinni Hríslu frá Hrísbrú en sú meri hefur verið í þjálfun hjá Agnari Magnússyni.

Allt þetta og meira til á Fákum og fjöri á morgun laugardag kl. 20:30Smilewww.lettir.is


Sjá Glym í stuði

Glymur og ÞórðurGlymur og ÞórðurGlymur í Rangárhöllinni

Sjá Glym og Þórður Þorgeirs  ofurspræka á frábærri stóðhestasýningu í Rangárhöllinni vorið 2009

Sjá video hér


Flottur foli

Sigurvin
Sigurvin frá Húsavík
Sigurvin er tveggja vetra foli. Eins og sjá má er Sigurvin vel byggður og prúður. Að sögn eigenda er hann mjög hreyfingamikill og rúmur á brokki og tölti. Afturfótahreyfingarnar miklar svo oft er engur líkara en hann sé undir manni þegar hann hreyfir sig.
sigurvin.jpgAllt eins og það á að vera:)
 
Tekið af vef Húsavíkurhesta
 

Faxprúð, litfríð og gangsöm folöld

Dagbjört frá SíðuFlottar merar

Hér koma tvær veturgamlar merar

Dagbjört frá Síðu er hryssa sem tók þátt í folaldasýningu Sörla. Hún stóð sig vel þar.

Skykkja frá KópavogiSkykkja frá Kópavogi er að sögn eiganda algjört fyrirmyndar hross í alla staði. Geðgóð, falleg, faxprúð og gangsöm.

 


14 sónaðar með fyli

Sigurdís frá Selfossija_nudda_mig_827023.jpgSónað var síðastliðinn föstudag

22 merar voru sónaðar af þeim 28 merum sem eru hjá Glymi nú á seinna gangmáli. 14 af þessum 22 fengu staðfest fyl hjá dýralækni.Frábær útkoma hjá Glymi sem er frjósamur með afbrigðum. 

Það sem af er sumri hefur Glymur því fyljað 66 merar.

 


Frábær fyljun.....

Nú er svaka fjörFrábær fyljun það sem af er sumri.

Nú þegar eru staðfest fyl í sumar undan Glymi orðin 52. Glymur var á suðurlandinu í húsnotkun með 24 staðfest fyl. Í fyrra gangmáli var Glymur í Húnavatnssýslunni í girðingu með 31 meri og af þeim voru 28 með staðfest fyl.

Glymur hefur verið afar vinsæll í sumar, er í góðu standi og hefur allt gengið mjög vel. Nú stendur yfir seinna gangmál en það er verulega spennandi að sjá hver niðurstaðan verður þegar haustið bankar á dyr.


Glymur kominn heim

Lítill og stórGlymur mættur á Eyri

Nú hefur Glymur verið á flakki í allt sumar og er loksins kominn heim eftir náin kynni við fjölmargar merar á suður- og norðurlandi. 

Skuggi, hundurinn á Eyri er sæll og glaður með það enda eru þeir miklir vinir:)

Í gær byrjaði Glymur á seinna gangmáli á Eyrinni. Vel á þriðja tug mera eru hjá honum núna og er Glymur í góðu standi.

 


Á framabraut...

FramiFrami Glymsson fæddur

Þann 7. júlí fæddist þessi glæsilegi hestur undan Glym frá Innri-Skeljabrekku og Freyju frá Enni.  Freyja er í eigu Úrvalshesta

Folinn ungi hefur fengið nafnið Frami, og er að sögn eigenda  hreyfingafallegur,  hágengur og spennandi.

Til hamingju með þetta Svanhildur og Maggi.


Spök Glymsdóttir

Spök 3Veturgömul hryssa

Spök från Dalbyn (SE2008208552) e: Glymur frá Innri-Skeljabrekku
 
The pictures are take 090605

Hér koma fleiri myndir

Til hamingju Sandra


Flottar myndir

veulens_3_juni_2009_056.jpg

Kom í heiminn í byrjun júní

Þessi hryssa hefur fengið nafnið Hít. Eigandinn hún Chantal sendi okkur nokkrar flottar myndir af henni og hér koma þær.

Thanks Chantal og til hamingju:)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband